Sæborg fagnar tvítugsafmæli

Skóli og frístund

""

Leikskólinn Sæborg hélt upp á tvítugsafmæli sitt 27. september. Af því tilefni var boðið til veislu þar sem börnin sungu og einnig var frumflutt ljóð um leikskólann á þessum tímamótum. Þá var boðið upp á myndlistasýningu í skólanum fyrir gesti og gangandi. 

Afmælisdagurinn var einnig útgáfudagur nýrrar námskrár leikskólans og tilefnið var jafnframt nýtt til að skipta út merki skólans, úr salamöndru í  sporðhákarl. Úti skartaði svo listaverkið hringekjan sínu fegursta með sporðhákarlinn á flugi.

Skemmtilegt þróunarverkefni hefur verið í gangi í Sæborg í samstarfi við Daða Guðbjörnsson myndlistarmann. Á afmælinu var gefin út skýrslu um þróunarverkefnið undir fyrirsögninni; Maður málar bara eins og manni sýnist. Hægt er að fá skýrsluna í leikskólanum.