Rýnt í Landslag. Hafnarhús, sunnudag 10. mars kl. 15

Kristinn E. Hrafnsson myndlistarmaður, Bjarki Bragason myndlistarmaður og Ragna Sigurðardóttir rithöfundur og gagnrýnandi ræða um sýningu Roberts Smithsons: Rýnt í Landslag

Robert Smithson (1938–1973) er einn áhrifamesti myndlistamaður á síðari hluta 20. aldar og var þekktastur sem einn af upphafsmönnum umhverfislistar (Land Art Movement). Á þessari sýningu er lögð áhersla á verkið Brotinn hringur/Spíralhæð sem Smithson gerði í Emmen í Hollandi árið 1971. Verkið er eina umhverfislistaverk Smithsons í Evrópu en hann lést í flugslysi tveimur árum síðar, aðeins 35 ára gamall. Á sýningunni gefur að líta flesta þá miðla sem Smithson notaði í listsköpun sinni, svo sem teikningar, ljósmyndir, bréf og kvikmynd sem hann var að vinna að þegar hann lést. Verkin veita góða innsýn í hugmyndafræði Smithsons um endurnýjun iðnaðarlands og hvernig hann skipulagði og byggði upp verkið Brotinn hring/Spíralhæð. Einnig er að finna þrjár kvikmyndir um önnur umhverfislistaverk Smithsons: Spiral Jetty, Mono Lake og Swamp.

Viðburðurinn er öllum opinn og fer fram á íslensku. Frítt er fyrir handhafa Menningarkortsins.