Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Ísland verslun hf. hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, tekið úr sölu og innkallað matvöruna Iceland 4 beef quarter pounders þar sem leifar af hrossakjöti fundust í vörunni. Á merkingu vörunnar stendur 100% nautakjöt og er innihaldslýsing því röng.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Iceland
Vöruheiti: Iceland 4 beef quarter pounders
Upprunaland: Bretland
Innflytjandi og dreifingaraðili: Ísland verslun hf., Sundaborg 11, 104 Reykjavík
Nettóþyngd: 454 g.
Lotunúmer: PLU 21244
Best fyrir: 06.08.2013
Dreifing: Verslanir Iceland í Engihjalla 8, Kópavogi og að Fiskislóð 3, Reykjavík.
Viðskiptavinir sem keypt hafa Iceland 4 beef quarter pounders með best fyrir dagsetningu 06.08.2013 geta skilað vörunni í verslanir Iceland.