Þann 19. febrúar gerðu Rofaborg og umhverfis- og skipulagssvið með sér samning um samstarf og nýtingu grenndarsvæðis í skólastarfi.
Markmið samstarfssins er að skapa vettvang fyrir umhverfisfræðslu í nágrenni leikskólans, á svæði sem býður upp á skemmtileg tækifæri til fræðslu og leikja. Svæðið hefur Rofaborg notað undanfarin ár til kennslu og leikja með börnunum.
Grenndarsvæðið er í Elliðarárdalnum milli göngustígs og Trönuhóla. Þar eru fjölbreyttir möguleikar til útináms fyrir börnin eins og lautir og klettar og nú gefst leikskólanum tækifæri til að þróa svæðið enn frekar til fræðslu og leikja. Það voru börnin sem gáfu svæðinu nafn, Krókódílatjörn.