Nichole Leigh Mosty leikskólastjóri í Ösp og Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri Fellaskóla fengu viðurkenningu Íslenskrar málnefndar.
Nichole Leigh Mosty, leikskólastjóri í Ösp, og Kristín Jóhannesdóttir, skólastjóri Fellaskóla, fengu viðurkenningu Íslenskrar málnefndar á Málræktarþingi í Þjóðmenningarhúsinu fimmtudaginn 14. nóvember, en þema verðlaunanna að þessu sinni var Íslenska sem annað mál og börn með erlendan bakgrunn í íslensku skólakerfi. Guðrún Kvaran, formaður Íslenskrar málnefndar, afhenti þeim viðurkenninguna. Valgerður Garðarsdóttir kennari við Menntaskólann í Hamrahlíð fékk einnig viðurkenningu.
Leigh Mosty er leikskólastjóri á leikskólanum Ösp, þar sem mikill meirihluti barnanna er með annað móðurmál en íslensku. Bæði börnum og foreldrum er kennd íslenska en um leið er metinn sá styrkleiki sem felst í góðri færni í móðurmálinu, segir í tilkynningu frá íslenskri málnefnd. Kristín Jóhannesdóttir er skólastjóri Fellaskóla, þar sem rúmlega helmingur nemenda býr við annað tungumál en íslensku á heimili. Báðir skólarnir taka þátt í verkefninu Okkar mál í Fellahverfi sem miðar að því að efla mál og læsi.
Nichole og Kristínu og öllu starfsfólki í leikskólanum Ösp og í Fellaskóla er óskað til hamingju með þessa viðurkenningu.