Velferðarráð samþykkti samhljóða á fundi sínum í dag að veita á þessu ári styrki til 36 félagasamtaka, sem starfa á sviði velferðarmála, vegna ársins 2013. Styrkir eru m.a. veittir til þeirra sem starfa að málefnum geðfatlaðra, fatlaðra barna, eldri borgara og utangarðsfólks.
Helst ber að nefna þriggja ára styrk til Stígamóta með hækkun um fimm milljónir á ári. Hækkunin rennur til reksturs Kristínarhúss sem veitir þolendum mansals og vændis aðstoð.
Til viðbótar við umrædda styrki er Reykjavíkurborg með samninga við 9 aðila til þriggja ára, sem gerðir voru á liðnu ári. Árlega fá þau tæpar 65 milljónir króna. Samtals er þetta því 211 milljónir króna til velferðarmála í Reykjavík. Þessir styrkir skila sér vel til borgarbúa, enda er starfsemi frjálsra félagasamtaka mikilvæg viðbót við opinbera velferðarþjónustu.