Reykjavíkurborg tekur þátt í Grænum apríl

Grænn apríl fer nú af stað í þriðja sinn. Þátttaka fer ört vaxandi  á milli ára enda er enginn maður með mönnum núna nema að huga að umhverfismálum í einhverju mæli.  Markmið mánaðarins er að hvetja ríkisstjórnina, sveitarstjórnir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að vinna saman að grænum lífsstíl. Reykjavíkurborg er samstarfsaðili í Grænum apríl og leggur sitt af mörkum til verkefnisins.

Hér að neðan er hægt að kynna sér fjölbreytta dagskrá mánaðarins.  Meðal þess sem má taka þátt í er Græni bakpokinn í Grasagarðinum, leggja leið sína í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn,  gefa bókum lengra líf  í Grænum bókum Borgarbókasafnsins eða kynna sér böðun og heitt vatn í Nauthólsvíkinni.

Af öllu öðru ólöstuðu skal vekja sérstaka  athygli á átakinu Einn svartur ruslapoki sem fer fram 20. apríl en það felst í því að borgarbúar taka til hendinni og tína rusl í nærumhverfi sínu. Olís mun gefa poka í þetta verkefni og starfsmenn Reykjavíkurborgar sækja pokana. Þetta verður kynnt nánar fljótlega.

Dagskrá Græns apríl

Allur apríl - Græni bakpokinn í Grasagarðinum. Í Grasagarðinum er hægt að fá lánaðan grænan bakpoka sem inniheldur skemmtileg náttúruverkefni og leiki fyrir leikskólahópa. Pokann er hægt að fá lánaðan án endurgjalds alla daga á opnunartíma garðsins. Nánari upplýsingar veitir Hildur Arna Gunnarsdóttir í síma 846-9276.

Allur apríl og  allan ársins hring - Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Markmið garðsins er að kynna borgarbúum íslensku húsdýrin, færa þá nær íslenskum búskaparháttum og efla tengsl á milli manna og dýra. Á hverjum degi eru fastir dagskrárliðir: http://www.mu.is/dagskra.

Allur apríl og allan ársins hring - Borgarbókasafn Reykjavíkur Græn bók. Gestir safnsins eru hvattir til að koma með bækur sem þeir eru búnir að lesa og finnst skemmtilegar og leyfa öðrum að njóta þeirra. Bækurnar eru merktar sérstaklega þessu verkefni Græn bók – góð bók. Öllum er frjálst að taka með sér bók og þarf enginn að hafa áhyggjur af skiladegi eða sektum. Skilyrði er að þær séu vel með farnar, hreinar og áhugaverðar. Markmið verkefnisins er að auðvelda aðgengi að bókum, hvetja til lesturs, ýta undir endurvinnslu og -nýtingu og að hafa það skemmtilegt. 

10. apríl kl. 18 -  Baðmenning í Nauthólsvík. Óttarr Hrafnkelsson, starfsmaður ÍTR í Nauthólsvík, segir frá baðmenningu Reykvíkinga þá og nú. Viðburðurinn fer fram á þaki Ylstrandarhússins. Þeir sem vilja geta skellt sér í sjósund og / eða heita pottinn á eftir.

13. apríl - 21. júní 2013 - Gerðuberg. Fuglar - listin að vera fleygur. Fuglar í öllum mögulegum birtingarmyndum eru efni þessarar stóru samsýningar sem verður sett upp í öllum fjórum sýningarrýmum Gerðubergs á vormánuðum. Fuglar eins og maðurinn sér þá; fiðraðir, tálgaðir, teiknaðir, glerjaðir, málaðir, myndaðir, mótaðir og talaðir á flug. Fuglar á ljósmynd og fuglar í lifandi mynd. 

20. - 21. apríl Hreinsunardagar - Átakið „Einn svartur ruslapoki“ felst í því að borgarbúar taki til hendinni og tíni rusl í nærumhverfi sínu. Olís mun gefa poka í þetta verkefn og Reykjavíkurborg mun sjá um að sækja pokana. Þetta verður kynnt nánar fljótlega. Hreinsunarátakið er í tilefni af alþjóðlegum Degi Jarðar 23. apríl.

26. apríl - 28. apríl - Margt leynist í náttúrunni. Grasagarðurinn í Laugardal. Nemendur í 5. bekk Laugarnesskóla sýna listrænan afrakstur rannsókna í Grasagarði Reykjavíkur.  Um er að ræða þriggja daga vinnusmiðju í samvinnu nemendanna við listkennslunema Listaháskóla Íslands og Grasagarðsins.  Í vinnunni er lögð áhersla á fjölbreyttar rannsóknir, listrænar birtingarmyndir með áherslu á endurvinnslu og endurnýtingu. Mörg verkanna eru þess eðlis að þau lúta hverfulleika náttúrunnar og því verður spennandi að fylgjast með þróun þeirra.

29. apríl:  kl. 12:00 - Græn skref í starfsemi Reykjavíkurborgar. Opinn hádegisfundur: Kerhólar, 7. hæð Borgartúni 12 - 14. Þátttaka er ókeypis en vinsamlegast skráið ykkur með því að senda tölvupóst á graenskref@reykjavik.is.