Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar, tilkynnti í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi í dag um styrkveitingar ráðsins árið 2013. Um leið var Tríó Sunnu Gunnlaugs útnefnt Tónlistarhópur Reykjavíkur 2013 og lék það við athöfnina sem styrkþegum var boðið til.
Þrjár hátíðir bættust í hóp þeirra sem njóta samstarfsamnings til þriggja ára úr svokölluðum Borgarhátíðasjóði, sem ætlað er örva nýsköpun í hátíðahaldi í Reykjavíkurborg:
Hinsegin dagar - Reykjavík Gay Pride fær 5 m.kr., Lókal, leiklistarhátíð 2,5 m.kr. og Reykjavík Dance Festival 2 m.kr. árlega 2013, 2014 og 2015.
Eftirtaldar hátíðir verða áfram á samningi árin 2013 og 2014:
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves með 10 m.kr. árlega, Hönnunarmars 5 m.kr., Jazzhátíð í Reykjavík 3 m.kr. og Blúshátíð í Reykjavík, Bókmenntahátíð í Reykjavík, Myrkir músikdagar og Food&Fun. með 2 m.kr. hver.
Einnig var samþykkt að gera samstarfssamninga við eftirtalda til þriggja ára vegna áranna 2013 til 2015 með fyrirvara um heimildir í fjárhagsáætlun 2014 og 2015:
Heimili kvikmyndanna til rekstrar Bíós Paradísar með 5.5 m.kr á ári, Nýlistasafnið til rekstrar safnsins 5 m.kr., Bandalag sjálfstæðra leikhúsa til rekstrar skrifstofu SL og Tjarnarbíós 2.4 m.kr, Kling og Bang til rekstrar gallerís 2 m.kr., Samtök um danshús til rekstrar dansverkstæðis 1.9 m.kr. og Myndhöggvarafélagið í Reykjavík til rekstrar verkstæðis og útisýninga í Höggmyndagarðinum 1.4 m.kr.
Tríó Sunnu Gunnlaugs hlýtur 1 milljón króna sem Tónlistarhópur Reykjavíkur 2013. Sunna Gunnlaugsdóttir hefur um árabil verið í röð okkar fremstu djasspíanóleikara en tríóið skipa auk hennar Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur.
Að auki var veittur 91 styrkur samtals 40.160.000 kr. - allt frá 100 þúsund krónum upp í 1.6 m.kr. hver eins og hljómsveitirnar Caput, Kammersveit Reykjavíkur og Stórsveit Reykjavíkur njóta í ár.
Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar skipa: Einar Örn Benediktsson formaður, Eva Baldursdóttir, Stefán Benediktsson, Marta Guðjónsdóttir, Áslaug María Friðriksdóttir og Davíð Stefánsson.
Ráðgefandi faghóp um styrkina skipuðu Sólrún Sumarliðadóttir formaður, Gunnar Hrafnsson, Lárus Ýmir Óskarsson, Ólöf Nordal og Randver Þorláksson.