Reykjavíkurborg fjárfestir fyrir 8,4 milljarða á næsta ári

Framkvæmdir

""

Fyrri umræða um frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar og fimm ára áætlun borgarinnar fer fram í borgarstjórn í dag. Reykjavíkurborg mun fjárfesta fyrir tæpa 8.4 milljarða króna á næsta ári og eru mörg stór verkefni framundan.

Meðal stórra fjárfestingaverkefna hjá Reykjavíkurborg á næstu árum verða framkvæmdir við skóla og íþróttamannvirki í Úlfarsárdal. Framkvæmdir hefjast við nýjan leik- og grunnskóla í Úlfarsárdal á næsta ári en skólinn mun kosta um 2,4 milljarða sem deilist á árin 2014 – 2018. Framkvæmdir við íþróttahús og nýja almennings- og skólasundlaug í Úlfarsdal munu einnig hefjast og er áætlaður kostnaður ársins en samtals munu mannvirkin kosta 2,5 milljarða sem deilist á árin 2014 – 2018. Þá munu framkvæmdir hefjast við íþróttasvæði Fram í Úlfarsárdal. Hönnunarsamkeppni um mannvirkin er í burðarliðnum og verður hún auglýst á næstu vikum.

Þá munu framkvæmdir við nýja útisundlaug við Sundhöll Reykjavíkur hefjast og er 150 m.kr. varið til verkefnisins á næsta ári en  áætlun gerir ráð fyrir að framkvæmdin kosti 900 m.kr til ársins 2016. Úrslita í hönnunarsamkeppni um það mannvirki er að vænta bráðlega.

Átak verður gert í viðhaldi skólamannvirkja í Reykjavík en  800 mkr. verður varið til stærri endurbóta á skólunum í borginni árið 2014. Svipuð áætlun hefur þegar verið framkvæmd í endurbótum á sundlaugarmannvirkjum í Reykjavík á síðustu árum.

Ráðist verður í  viðbyggingu og breytingar við Klettaskóla en 150 milljónum verður varið til þeirrar framkvæmdar á næsta ári en alls mun skólinn kosta rúma 1,6 milljarða á fimm ára tímabili.

Á næsta ári verður varið 300 milljónum til endurbyggingar skólalóða í borginni og boltagerða.

Endurgerð Hverfisgötu verður kláruð en í það fara 400 milljónir. Alls munu 550 milljónir króna fara í endurbætur gatna í Miðborginni en gerðar verða gagngerar endurbætur á Pósthússtræti fyrir 100 m.kr. frá Austurstræti að Hörpu.

Þá eru 150 milljónir áætlaðar til endurbóta á Hofsvallagötu á næsta ári en þar stendur til að koma fyrir nýjum hjólastígum og hægja á umferð frá Túngötu að Ægissíðu.

350 m.kr. verður varið til nýrra hjólastíga á næsta ári en varið verður 350 m.kr. á ári næstu fimm árin til nýrra stíga og endurbóta á hjólastígakerfi borgarinnar.  Þá verða keyptir nýir visthæfir sorpbílar með tvískiptum geymsluhólfum sem kosta um 200 milljónir.

Þá mun tölvubúnaður Reykjavíkurborgar verða endurnýjaður fyrir 350 milljónir á næsta ári og alls fyrir rúma 1,7 milljarða króna á næstu fimm árum.  Er þar um að ræða endurnýjun tölvubúnaðar á öllum starfsstöðum Reykjavíkurborgar, til að mynda í skólunum.