Reykjavík iðandi af lífi, fræðsluátak Reykjavíkurborgar um líffræðilega fjölbreytni, verður með fuglaskoðun á laugardaginn 21. September kl 13:00 við Blikastaðakró í Grafarvogi
Hist verður við bílastæðið neðst í Barðastöðum í Staðahverfi nálægt golfvellinum og gengið niður á göngustíginn þar sem stillt verður upp sjónaukum og fylgst með fuglalífinu á leirunum og víðar. Vonandi eru síðustu farfuglarnir enn að hópa sig saman og fita sig fyrir langferðina. Hugsanlega sjást t.d. rauðbrystingar og margæsir.
Snorri Sigurðsson og Freydís Vigfúsdóttir fuglafræðingar verða með leiðsögn. Nokkrir sjónaukar verða á svæðinu sem standa öllum til boða en mælt er með að fólk taki með sér sinn eigin kíki ef mögulegt er og alltaf er gott að hafa fuglabókina með í för. ATH breytt tímasetning frá áður auglýstri dagskrá.
Frekari upplýsingar um Reykjavík iðandi af lífi má sjá á www.facebook.com/reykjavikidandi