Árleg réttindaganga leikskóla- og grunnskólabarna verður farin miðvikudaginn 20 nóvember, á afmælisdegi Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Lagt verður upp frá Hallgrímskirkju kl. 15.00 og gengið niður í Ráðhús Reykjavíkur þar sem Jón Gnarr borgarstjóri mun taka á móti börnunum.
Hátt í þrjú hundruð börn úr leik- og grunnskólum í miðborginni munu taka þátt í göngunni og minna á réttindi sín.
Það er frístundamiðstöðvin Kampur sem stendur fyrir réttindagöngunni líkt og undanfarin fimm ár. Að þessu sinni verður gangan farin með börnum í 1. bekk Austurbæjarskóla, af leikskólanum Miðborg og frístundaheimilunum Draumalandi, Eldflauginni og Halastjörnunni.
Á hverju ári vinna börn á þessum frístundaheimilum með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, þar sem þeim eru kynnt grunnréttindi sín í gegnum listir og leik.
Dagana 21.-24.nóvember verður sýning í anddyri Borgarbókasafns með verkefnum úr þemavinnu barnanna.