Reglur um leikskólaþjónustu breytast 1. mars

Skóli og frístund

Reglur Reykjavíkurborgar um leikskólaþjónustu breytast frá 1. mars 2013. Í stað þess að vísað sé til leikskólasviðs í reglunum er nú vísað til skóla- og frístundasviðs.

Meðal annarra breytinga er að í stað þess að skylt sé að börn fái fjögurra vikna sumarleyfi fá þau tuttugu virka daga í sumarleyfi. Leikskólastjóri ákveður, að höfðu samráði við starfsmenn og foreldraráð leikskólans, hvort skólinn verði opinn allt sumarið eða loki samfellt í tíu virka daga, í stað tveggja vikna, til tuttugu virkra daga, í stað fjögurra vikna áður.

Tekið er fram að skóla- og frístundasvið gerir ekki samninga við sjálfstætt starfandi leikskóla utan Reykjavíkur vegna vistunar reykvískra barna. Framlag skóla- og frístundasviðs vegna reykvískra barna í sjálfstætt starfandi leikskólum utan Reykjavíkur fer eftir sérstöku samkomulagi sveitarfélaga, sjá nánar www.samband.is, enda uppfylli barn skilyrði um aðgang í leikskóla Reykjavíkurborgar. Sækja skal um slíka undanþágu á netfangið: sfs@reykjavik.is

Ekki er greitt framlag með börnum yngri en 18 mánaða í sjálfstætt starfandi leikskóla utan Reykjavíkur en heimilt er að greiða sömu niðurgreiðslu og greidd er til dagforeldra sé öllum skilyrðum reglna um niðurgreiðslu fullnægt. Sækja skal um slíka undanþágu á netfangið: sfs@reykjavik.is. Reglan um að greidd sé sama niðurgreiðsla og til dagforeldra með börnum yngri en 18 mánaða í sjálfstætt starfandi leikskólum utan Reykjavíkur tekur gildi 1. september 2013.

Í reglurnar hefur verið sett ákvæði um rétt til námsmannaafsláttar í fæðingarorlofi og rétt til afsláttar til þeirra er fá endurhæfingarlífeyri. 

Breytingarnar eru fleiri en að framan greinir en allar breytingar má sjá í reglum um leikskólaþjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk skóla- og frístundasviðs í síma 4 11 11 11.