Á morgun, þriðjudaginn 23. júlí, verður torgið á horni Álfheima og Langholtsvegar, oft kallað “Rauða Torgið” formlega opnað eftir endurnýjun og breytingar. Torgið er hluti af verkefni á vegum Reykjavíkurborgar, Torg í Biðstöðu.
Hópurinn sem stendur fyrir breytingunum á torginu samanstendur af myndlistarmönnunum Bjarka Bragasyni og Hildigunni Birgisdóttur, Hildi Steinþórsdóttur arkitekti og Rúnu Thors vöruhönnuði, og þróuðu þau verk fyrir torgið út frá rými þess eftir greiningarferli á virkni og mögulegri notkun rýmisins. Breytingarnar á torginu miðast allar út frá því að skoða möguleika til þess að bæta aðstæður gangandi vegfarenda á svæðinu, búa til fjölbreytta áningastaði, leiksvæði, nýta gæðin sem fyrir eru á svæðinu, búa til tengingar á milli verslunarkjarna og torgsins með því að loka fyrir bílaumferð á óformlegum malarstíg á bakvið kjarnann og skapa aðstæður fyrir fjölbreytta viðburði.
Verkið samanstendur af steyptum formum sem hlykkjast í gegnum torgið, í kring um skúlptúr myndlistarmannsins Hallsteins Sigurðssonar og niður eftir verslunarkjarnanum. Formin eru sérstaklega hugsuð með það í huga að brjóta upp rými torgsins. Nýjum bekkjum hefur einnig verið komið fyrir til þess að búa til fjölbreyttar aðstæður til samtals og samveru.
Opnunarhátíð torgsins verður á þriðjudaginn 23. júlí kl 17.00, fjölbreytt tónlistaratriði verða í boði ásamt skemmtilegum veitingum.