Rafrænar íbúakosningar um Betri Hverfi haldnar 4. – 11. apríl
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að fresta rafrænum íbúakosningum um Betri hverfi sem halda átti dagana 14. - 19. mars fram yfir páska. Kosningarnar verða í staðinn haldnar dagana 4. - 11. apríl.
Í kosningunum velja íbúar ýmis framkvæmdaverkefni í hverfum Reykjavíkur sem hugmyndir hafa komið að í gegnum vefsvæðið Betri hverfi á samráðsvefnum Betri Reykjavík.
Að sögn Hilmars Magnússonar verkefnisstjóra Betri Reykjavíkur er ástæðan fyrir frestuninni sú að gríðarlegur fjöldi hugmynda barst frá íbúum inn á vefsvæðið Betri hverfi.
Óskað var eftir hugmyndum frá íbúum í janúar og rann frestur til að setja inn hugmyndir út 15. febrúar sl. Um 600 hugmyndir bárust frá íbúum sem er mikil fjölgun frá því í fyrra þegar um 350 hugmyndir bárust.
Fagteymi á vegum borgarinnar fer yfir allar hugmyndirnar ásamt íbúanefndum sem voru valdar á íbúafundum borgarstjóra í janúar. Þá hafa hverfisráðin í borginni aðkomu að uppstillingu á hugmyndum sem stillt verður upp í kosningunum.
Stillt verður upp allt að 30 hugmyndum í hverju hverfi en fyrst þarf að kostnaðarmeta allar hugmyndirnar og meta hvort það er á færi borgarinnar að framkvæma þær. Til þess að vera tækar í kosningu verða hugmyndir að vera tiltölulega auðframkvæmanlegar og ekki krefjast mikils samráðs við aðra aðila. Þær þurfa að vera innan fjárheimildar hverfisins, falla að skipulagi og vera í verkahring borgarinnar, svo eitthvað sé nefnt.
Þessi vinna stendur yfir þessar vikurnar ásamt endurbótum á rafrænu kosningakerfi Reykjavíkurborgar.
Rafrænar íbúakosningar í Reykjavík 4. - 11. apríl
Kosningarnar hefjast fimmtudaginn 4. apríl og lýkur á miðnætti fimmtudags 11. apríl. Kosningakerfið er því opið í rúma viku sem gefur öllum rúman tíma til að kynna sér hugmyndirnar sem kosið er um og velja þær hugmyndir sem þeim líst best á.