Ræðulið Laugalækjarskóla átti í harðri baráttu við lið Hagaskóla í úrslitum Mælsku- og ræðukeppni grunnskólanna í Reykjavík og nágrenni, MORGRON.
Umfjöllunarefnið var heimur án landamæra og voru liðin jöfn framan af. Ræðumaður kvöldsins kom úr liði Hagaskóla, en lið Laugalækjarskóla hafði engu að síður betur og sigraði með 17 stiga mun.