Ræða leiðir til að efla heilsu barna

Skóli og frístund Íþróttir og útivist

""

Starfshópur vinnur um þessar mundir að tillögum um leiðir til að efla heilsu grunnskólabarna. Hann efndi til fundar með fagfólki til að leita eftir hugmyndum og ræða hvernig samþætti mætti hreyfingu og hollustu í skólastarfinu.

Fjölmennt var á fundi í Laugardalshöll um heilsueflingu barna á grunnskólaaldri miðvikudaginn 13. nóvember. Fundinn sóttu m.a. íþrótta- og sundkennarar grunnskólanna, fulltrúar íþróttafélaga, frístundaráðgjafar og verkefnastjórar frístundaheimila og félagsmiðstöðva. Þar voru til umfjöllunar ýmsar leiðir til að auka hreyfingu og bæta heilsu barna á grunnskólaaldri.

Líflegar umræður voru á fundinum og verða ýmsar hugmyndir sem þar komu fram nýttar í vinnu starfshóps sem skila mun tillögum um heilsueflingu á vormánuðum. 

Almenn hreyfing og heilsuefling er mikilvæg í öllu starfi skóla- og frístundasviðs enda kveður leiðarljós sviðsins á um að börnum og ungmennum í borginni líði vel, fari stöðugt fram og að þau öðlist uppeldi og menntun fyrir líf og starf.