Piparkökuilmur í Sæborg

Skóli og frístund

""

Börnin á Sæborg eru farin að undirbúa jólin og mótuðu þau og bökuðu piparkökur í vikunni. 

Mikil sköpunargleði ríkti þegar verið var að móta kökurnar sem voru með alls slags sniði; dýr, stafir, kúlur og kassar. Sumir gátu ekki staðist freistinguna og fengu sér óspart að smakka af deiginu enda var það hið ljúffengasta. Piparkökuilmurinn fyllti svo húsið þegar hinar formfögru kökur voru bakaðar og verða þær bornar fram á skapandi-jólakvöldi með foreldrum í næstu viku en þá stendur til að búa til jólatré fyrir öll börnin í leikskólanum.