Pappírsmagn tvöfaldast í bláum tunnum

Umhverfi Framkvæmdir

""

Árangur þess að nú er skylda að flokka pappír frá rusli er byrjaður að koma í ljós jafnvel þótt flokkun sé ekki að fullu hafin í öllum hverfum borgarinnar. Ef aprílmánuður 2012 og 2013 eru bornir saman kemur í ljós að magn pappírs sem skilað er í bláu tunnuna hefur tvöfaldast. Það var 80 tonn í apríl 2012 en var rúmlega 160 tonn í apríl 2013. Allur þessi pappír verður endurunninn í aðrar vörur í stað þess að verða urðaður. 

Margir hika við að skila inn grárri tunnu í stað blárrar en það er að breytast. Bláu tunnurnar hafa sannað sig og eftir því sem flokkunin er skilvirkari minnkar rusl í gráu tunnunum. Enda má fá næstum þrjár bláar tunnur á verði einnar grárrar.



Fá má upplýsingar um hvað má fara í bláu tunnuna á vefsíðunni www.pappirerekkirusl.is.