Pappírssöfnun gengur vel í Reykjavík og íbúar taka vel við sér varðandi flokkun á pappír í bláu tunnuna og grenndargáma.
Reykvíkingar munu á þessu ári hætta alveg að henda pappír, pappa, dagblöðum, tímaritum, fernum og skrifstofupappír í almennar sorptunnur. Pappír er auðlind sem á að fara endurvinnslutunnur eða í grenndargáma. Þetta er í samræmi við breytta sorphirðu í Reykjavík og tekur hún gildi á mismunandi tíma eftir borgarhverfum.
Pappírinn er sendur til endurvinnslu í Svíþjóð þar sem hann er endurunninn á mjög hagkvæman hátt.
Breytingin er um þessar mundir kynnt undir slagorðinu „Pappír er ekki rusl“ og gengur í gildi á mismunandi tíma í hverju borgarhverfi fyrir sig. Breytingin hefur þegar farið fram á Kjalarnesi í Grafarholti og Úlfarsárdal og nú er komin röðin að Árbæ, Norðlingaholti og Grafarvogi.
Bæklingur er borinn í hvert hús með upplýsingum um hvaða pappír beri að flokka til endurvinnslu. Að undanförnu hafa birst sjónvarpsauglýsingar þar sem fólk er hvatt til þess að flokka pappírinn frá. Þá hafa birst blaðaauglýsingar auk þess sem öflug heimasíða á vegum borgarinnar, pappirerekkirusl.is, skýrir málið í smáatriðum fyrir borgarbúum. Þar er einnig hægt að panta bláar tunnur og nota reiknivél til að velja ílát.
Matarumbúðir, mjólkur- og safafernur, morgunkornskassar og aðrar slíkar umbúðir eru stór þáttur af þeim pappír og pappa sem flokka þarf frá almennum úrgangi sem fellur til á heimilum. Einnig eru dagblöð og auglýsingablöð viðamikill þáttur. Flestallir kaupmenn og fjölmiðlar sem Reykjavíkurborg hefur haft samband við fagna þessari breytingu hjá Reykjavíkurborg og vilja leggja lóð sitt á vogarskálina.
Kynningin mun einnig vera áberandi í matvöruverslunum því umbúðir verða merktar sérstaklega með þeim orðum að þær séu ekki rusl og fólk er vinsamlegast beðið um að stinga þessum verðmætum í bláa tunnu við heimili sitt eða grenndargám í nágrenninu eftir notkun. Þá er einnig hægt að skila pappír án endurgjalds á endurvinnslustöðvum Sorpu.
Nokkur fyrirtæki hafa tekið vel í að bæta merkingar á umbúðum sínum. Til dæmis mun Domino‘s Pizza merkja umbúðir utan um matvörur sínar með miða sem á stendur „Þessi kassi er ekki rusl“ og er fólk beðið um að koma honum á réttan stað. Einnig hafa prentuð dagblöð tekið því vel að merkja blöðin með ábendingum um að skila þeim til endurvinnslu.
Reykvíkingar geta pantað tunnur og leitað allra upplýsinga á heimasíðunni pappirerekkirusl.is og þar kemur m.a. fram hvaða pappír er endurvinnanlegur og að hægt er að spara sorphirðugjöld með því að skipta út einni grárri tunnu fyrir aðra bláa. Þar má einnig finna margar tillögur að því hvernig hægt er að skipa ruslinu í fötur í eldhúsinu og þar má finna sorphirðudagatal, kort yfir grenndargáma ofl.
Reykjavíkurborg vill kynna þessa breytingu vel í hverju hverfi með því að senda upplýsingar á sérhvert heimili. Breytingin sjálf verður um miðjan janúar í Árbæ, Norðlingaholti og Grafarvogi, í Breiðholti í febrúar, í Háaleiti og Laugardal í mars, í apríl í Hlíðum og miðborginni og um miðjan maí í Vesturbær.
Húsfélög geta sótt sérstaka kynningu á vefinn pappirerekkirusl.is og pantað veggspjöld og slæðukynningu. Loks má geta þess að á heimasíðunni er öllum helstu spurningum svarað sem líklegt er að upp komi.
Gagnlegir tenglar:
Lausnir fyrir heimili: http://pinterest.com/tunnan/
Settu dæmið upp: http://www.pappirerekkirusl.is/#section-settu-daemid-upp
Spurt og svarað: http://www.pappirerekkirusl.is/?p=sos
Ítarefni fyrir húsfélög: http://www.pappirerekkirusl.is/#section-hvada-pappir-er-rusl
Eldri frétt um málið: http://reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3821/1198_read-33905