Fjöldi barna hafa lagt leið sína í Ráðhús Reykjavíkur í dag í tilefni Öskudagsins. Börnin syngja lag og fá ávexti að launum. Búningarnir hafa verið margskonar, kúrekar, apar, englar og trúðar. Eftir sönginn og ávextina héldu krakkarnir áfram ferð sinni um miðborgina, enda fjöldi verslana og fyrirtækja sem taka vel á móti krökkunum og gefa þeim góðgæti fyrir sönginn.