Meðal hugmynda sem íbúar lögðu inn í verkefnið Betri hverfi var jóla- og umhverfislýsing. Þessi verkefni fengu brautargengi annarra íbúa og nú í vikunni var unnið við að setja upp lýsingu á þremur stöðum: Við Bræðraborgarstíg og Hringbraut og á Klambratúni.
Tréð við Bræðraborgarstíg er staðsett á leiksvæði og meðal hugmynda var að um jól gætu leikskólabörn í hverfinu hengt glitrandi skraut í tréð. Tréð er með stóra krónu sem breiðir úr sér. LED kastarar mynda hring í jörðu umhverfis tréð og lýsa upp í krónuna.
Við Þjóðarbókhlöðuna við Hringbraut eru tvær þyrpingar lauftrjáa og er verið að koma fyrir í jörð öflugum lömpum sem lýsa munu upp kjarnana í þyrpingunum. Gera má ráð fyrir að á mánudagskvöld verði komin full lýsing á kastarana. Þeir eru af sömu gerð og lýsa upp tré við Austurvöll. Nú á aðventunni verður rauður filter á kösturum til að skapa hátíðarblæ.
Á Klambratúni er við vesturinngang mjög þéttur gróður sem erfitt er að lýsa upp nema með mörgum litlum lömpum. Notaðir voru LED ljóskastarar sem geta skipt litum. Sérhver árstíð verður með forritaða litastillingu og má gera ráð fyrir einhverjum leik í lýsingu t.d. á Vetrarhátíð.
Lýsingarhönnun var á hendi Verkís en þar starfar sérstakur lýsingahópur. Verktaki var Steingarður ehf.
Sjá einnig verkefnasíðu í Framkvæmdasjá.