Óskað eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna
Viltu vekja athygli á gróskumiklu leikskóla-, grunnskóla- eða frístundastarfi á vegum Reykjavíkurborgar? Viltu veita starfsfólki í skóla- og frístundastarfi viðurkenningu? Veistu af metnaðarfullum þróunarverkefnum, skemmtilegum tilraunum eða annarri nýbreytni í skóla- og frístundastarfi?
Óskað er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs og er skilafrestur 12. apríl. Allir geta tilnefnt til verðlaunanna; foreldrar, kennarar, ömmur og afar, borgarstarfsmenn, stofnanir og samtök. 9 verkefni sem þykja skara fram úr verða verðlaunuð og verða hvatningarverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn um miðjan maí.