Orkuveita Reykjavíkur greiðir niður skuldir

Fjármál

""

Borgarráð svaraði á fundi sínum í dag tillögu af Betri Reykjavík um skuldasöfnun Orkuveitu Reykjavíkur. Erindið af Betri Reykjavík var svohljóðandi:

„Hætta skuldasöfnun Orkuveitunnar.“

„Minnka ábyrgð á lánum OR: Draga úr óþarfa framkvæmdum OR og einbeita sér að kjarnastarfsemi. Reykjavík þarf ekki á meiri orkuframleiðslu að halda næstu áratugi en lægra verð á rafmagni og hita væri kærkomið. Virkja minna, skulda minna.“

Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar svarar tillögunni. Í greinargerð frá Birgi Birni Sigurjónssyni, fjármálastjóra Reykjavíkurborgar, segir að stjórn og eigendur Orkuveitu Reykjavíkur hafi í apríl 2011 samþykkt aðgerðaáætlun fyrir tímabilið 2011 - 2016 sem gengið hefur undir nafninu Planið með það að markmiði að tryggja fjármögnun og rekstarhæfi fyrirtækisins.

Í greinargerðinni er farið yfir það í hverju þær aðgerðir fólust í meginatriðum. Síðan segir í greinargerðinni.

„Nýleg yfirferð yfir framvindu aðgerðaáætlunarinnar frá 23. nóvember 2012 sýnir að fyrirtækið er komið lengra í útgjaldasparnaði á þriðja ársfjórðungi 2012 en áætlanir gerðu ráð fyrir, hækkun tekna er meiri en áætlað var og framlegð fyrirtækisins og geta til að standa við skuldbindingar þess vegna meiri en vænst var. Það vinnur sannarlega gegn óhagstæðri þróun gengis og álverðs umfram það sem áætlað var. Samdráttur í fjárfestingum hefur sömuleiðis orðið meiri en áætlað var og eigendur gengu frá fyrri hluta eigendalána í apríl 2011 og munu ganga frá seinni hlutanum í byrjun mars 2013. Einungis sala eigna hefur gengið hægar fyrir sig en áætlun gerði ráð fyrir. Hér ber þó þess að geta að gert er ráð fyrir að eignasala á fyrsta ársfjórðungi 2013 muni nema um 6,2 milljörðum við sölu húseignanna að Bæjarhálsi/Réttarhálsi og Perlunnar sem er afar mikilvægt fyrir lausafjárstöðu og trúverðugleika fyrirtækisins.

Varðandi skuldasöfnun þá hefur OR ekki tekið ný lán nema frá eigendum frá samþykkt Plansins og einbeitt sér að því að greiða niður skuldir.  Á síðustu tveimur árum hefur OR greitt niður skuldir sem nemur um 31 milljarði.“

Samkvæmt Planinu mun Orkuveitan greiða niður skuldir um rúma 107 milljarða til ársins 2016.

Sjá svar fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar.