Opnunarhátíð Kaffihússins GÆS

Mannlíf Menning og listir

""

Opnunarhátíð kaffihússins GÆS var haldin með pompi og prakt á laugardaginn. Fjölmenni sótti kaffihúsið og var boðið upp á hressingu og skemmtidagskrá í sal Tjarnarbíós.Fimmenningarnar þau Steinunn Ása, Gísli, Lára, Unnur og María sem standa að kaffihúsinu hafa lagt nótt við dag til þess að gera allt tilbúið. Mikið var um dýrðir á opnunarhátíðinni í Tjarnarbíói boðið var upp á tónleika þar sem hljómsveitin Dikta tók nokkur lög, Högni í Hjaltalín steig á stokk ásamt Steinunni Ásu sem söng viðlagið í laginu „Þú komst við hjartað í mér“ og Prins póló spilaði fyrir gesti. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, hélt ræðu þar sem hann sagðist afar stoltur af þessu verkefni sem Reykjavíkurborg væri að styrkja þar sem ungir frumkvöðlar væru að sjá draum sinn rætast. Hann færði þeim blómvönd og tvær plastgæsir sem prýða munu kaffihúsið.

Í maí efndu þau til bollasöfnunardags sem tókst með afbrigðum vel og safnaðist mun meira en þörf er á. Brugðið var á það ráð að bjóða kaffibolla til kaups og rennur féð til styrktar starfsemi kaffihússins. Allt er tilbúið fyrir opnun og búið er að skreyta húsnæðið með einföldum en skemmtilegum hætti. Það eina sem vantaði upp á á laugardaginn var rekstrarleyfið en búist er við því að það berist á næstu dögum og er stefnt að opnun GÆS þann 7. júní nk.

Sjá má fleiri myndir frá opnuninni á Facebooksíðu Reykjavíkurborgar.