Opnir fundir verkefnahópa í tengslum við verkefnið Betri hverfi!

Umhverfi Skipulagsmál

""

Dagana 25. og 26. febrúar munu verkefnahópar Laugardals og Háaleitis- og Bústaðahverfis, sem myndaðir voru á fjölmennum íbúafundum með borgarstjóra í jan sl, standa fyrir opnum fundum þar sem íbúum gefst færi á að kynna sér umsagnir fagteymis Reykjavíkurborgar við innsendum hugmyndum í kosninguna. Á fundunum gefst áhugasömum jafnframt lokatækifæri á að koma hugmyndum sínum á framfæri.

Báðir fundirnir fara fram í fræðslusetri Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis og hefjast kl 17.00.

25. febrúar. Verkefnahópur Háaleitis- og Bústaðahverfis

26. febrúar. Verkefnahópur Laugardals

Verkefnahóparnir hvetja alla áhugasama til þess að mæta.