ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Opinn íbúafundur í Bólstaðarhlíð 43 þriðjudaginn 26. febrúar kl. 17.00 - 18.00
Íbúar í Hlíðum
Gerum Reykjavík enn betri!
Íbúafundur um verkefni Hlíða í Betri hverfum 2013.
Verkefnishópur Hlíða boðar til framhaldsfundar í Bólstaðarhlíð 43, þriðjudaginn 26. febrúar kl. 17.00. Farið verður yfir þau verkefni sem komin eru í pottinn og þau m.a. skoðuð með tilliti til fjölda, fjölbreytni og dreifingar um hverfið. Stefnt er að því að bjóða upp á allt að 30 verkefni í hverfinu við rafræna kosningu í mars og því um að gera að láta sjá sig og setja fram skoðanir og ábendingar.