Opið fyrir umsóknir í Vestnorræna höfuðborgasjóðinn

Vestnorræni höfuðborgasjóður Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar auglýsir eftir styrkumsóknum fyrir árið 2013 

Reykjavíkurborg er aðili að Vestnorræna höfuðborgasjóði Færeyja, Grænlands og Íslands. Sjóðurinn hefur að markmiði að efla skilning og samstarf,  m.a. á sviði menningarmála, milli þessara borga, íbúa þeirra, samtaka og stjórnmálamanna og veita fjárstyrki til verkefna sem þjóna þessum markmiðum. 

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem tengjast samskiptum milli höfuðborganna og efla tengsl þeirra með einhverjum hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta. 

Í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrirkomulagi þeirra, tímasetningu og kostnaði. 

Umsókn skal beint til:

Vestnorræni höfuðborgasjóður Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar

b.t. skrifstofu borgarstjóra og borgarritara

Ráðhúsi Reykjavíkur

Tjarnargötu 11

101 Reykjavík 

Umsóknir berist eigi síðar en þriðjudaginn 30. apríl nk. og koma umsóknir, sem síðar kunna að berast ekki til afgreiðslu. 

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, Ráðhúsi Reykjavíkur, sími: 411 4500. Stjórn sjóðsins mun afgreiða umsóknir í maí nk.

 

Reykjavík, 2. apríl 2013

Borgarritari