Um Hvítasunnuhelgina verða teknir í gagnið Vatnaboltar þar sem gestir geta prófað að ganga á vatni í risaboltum.Slíkir boltar voru einnig í garðinum síðasta sumar og vöktu mikla athygli en nú í sumar gilda dagpassar og skemmtimiðar í Vatnaboltana líkt og önnur tæki garðsins.
Annan í hvítasunnu (20. maí) mun Pétur Guðmundsson kúluvarpari standa fyrir Hálandaleikum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Leikarnir hefjast klukkan 14.00 og hafa 10 karlar og 6 konur skráð sig til leiks. Keppt verður í hefðbundnum greinum skoskra hálandaleika. Þær eru steinkast, lóðkast, sleggjukast og hið sívinsæla staurakast. Allir keppendur mæta í skotapilsi og sekkjapíputónlist mun óma. Að sögn Péturs er lagt upp með að hafa leikana skemmtilega, líflega og stresslausa.