Þann 20. nóvember er afmælisdagur Barnasáttmálans en þann dag eru 24 ár liðin frá því að hann var samþykktur af Sameinuðu Þjóðunum. Í tilefni tímamótanna verður haldinn morgunverðarfundur þann 20. nóvember nk. á Grand Hótel þar sem fjallað verður um réttindi barna og Barnasáttmálann út frá ýmsum hliðum. Fundurinn hefst kl. 8.15-10.30 og eru allir velkomnir. Áhugaverðir fyrirlesarar munu fjalla um málefnið frá ýmsum hliðum.
Á morgun þann 20. nóvember er afmælisdagur Barnasáttmálans á Íslandi en þann dag eru 24 ár liðin frá því að hann var samþykktur af Sameinuðu Þjóðunum. Barnasáttmálinn hefur að geyma ýmis grundvallarréttindi og tryggir öllum börnum upp að 18 ára aldri sérstaka vernd og umönnun. Sömuleiðis endurspeglar sáttmálinn nýja sýn á hlutverk og stöðu barna og tekur fram að öll börn eigi rétt á því að vera fullgildir þátttakendur í samfélaginu. Með uppbyggingu þekkingar á réttindum barna, skilningi á möguleikum Barnasáttmálans og fræðslu til þeirra sem bera ábyrgð á börnum í starfi sínu/uppeldishlutverki má tryggja réttindi barna.