Ókeypis í Ormagöng strætó!

Menning og listir

""

Á Safnanótt 8. febrúar mun Safnanæturstrætó flytja gesti Vetrarhátíðar frítt milli allra sex sveitarfélaga Höfuðborgasvæðisins. En gestir Safnanæturstrætó munu ekki sitja auðum höndum því með því að stíga inn í strætó stíga gestir inn í einskonar ormagöng sem opna mun rýmið milli vagnanna í hljóði og mynd. Það er S.L.Á.T.U.R. - Samtök Listrænt Ágengra Tónskálda Umhverfis Reykjavík sem opna munu fyrir þessa nýju rýmis og hljóðskynjun gesta og taka þá með sér í ferðalag sem er ólíkt öllu öðru sem þeir hafa upplifað.

Gestir geta auk þess átt von á að hitta víkinga og aðrar verur í strætó og hver veit nema góðir gestir lumi á skemmtilegum fróðleik sem gaman er að hlíða á!

Safnanæturstrætó mun hafa miðstöð sína á Kjarvalsstöðum og hefst akstur hans klukkan 19:00.

41 safn á öllu höfuðborgarsvæðinu taka þátt í Safnanótt í ár en öll verða þau með fjölbreytta og spennandi dagskrá í boði sem ber yfirskriftina Magnað Myrkur og stendur yfir til miðnættis.

Nánari upplýsingar um dagskrá Vetrarhátíðar.