Nýtum og njótum - Listasmiðjur fyrir 6-12 ára börn

Umhverfi Skóli og frístund

""

Sunnudaginn 17. nóvember kl. 12:30-14:00 og kl. 15:00-16.30 verða haldnar tvær listasmiðjur fyrir börn á aldrinum 6-12 ára og foreldra/forráðamenn þeirra í Norræna húsinu, Sturlugötu 5. Smiðjurnar eru haldnar í tengslum við Nýtniviku Reykjavíkurborgar sem verður haldin hér á landi vikuna 16. - 24. nóvember.

Markmið vikunnar er að draga úr myndun úrgangs og hvetja fólk til að nýta hluti betur. Vikan er samevrópsk og er ætlað að vekja fólk til vitundar um nauðsyn þess að draga úr magni úrgangs m.a. með því að lengja líftíma hluta, samnýta hluti og stuðla almennt að því að hlutir öðlist framhaldslíf frekar en að enda í urðun. 

Í listasmiðjunum munu þátttakendur búa til stól undir handleiðslu Brynhildar Þorgeirsdóttur og Ínu Salóme Hallgrímsdóttur, myndlistarmanna og kennara við Myndlistaskólann í Reykjavík. Smiðjunum er ætlað að vekja fólk til vitundar um allt það sem fellur til m.a. vegna umbúða af vörum sem fólk kaupir og neytir daglega, og sýna hvernig hægt er að gefa þeim nýtt hlutverk. Unnið verður með það fjölbreytta úrval af pappír sem að borgarbúar flokka nú frá öðrum úrgangi og setja í bláu tunnuna og koma á grenndar- og endurvinnslustöðvar, svo sem mjólkurfernur, eggjabakka, dagblöð, umbúðir utan af morgunkorni o.s.frv. Einnig verður skoðað hvernig hlutir eins og sælgætispappír, korktappar og hlutir af gosdósum geta líka reynst tilvalinn efniviður til sköpunar.

Þátttaka í smiðjunum er ókeypis en Reykjavíkurborg og Norræna húsið kosta verkefnið. Þátttakendur verða að skrá sig í gegnum netfangið nh@nordice.is eða með því að hringja á skrifstofu Norræna hússins í síma 551 7090 fyrir föstudaginn 15. nóvember. Hámarksfjöldi þátttakenda er 20 börn í hvorri smiðju.