Nýtt aðalskipulag fyrir Reykjavík - Verkefnislýsing

Nýtt aðalskipulag fyrir Reykjavík. Verkefnislýsing. 



Með vísan til 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 6.gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana, er verkefnislýsing endurskoðunar aðalskipulags Reykjavíkur lögð fram á ný til kynningar. Fyrri lýsing var samþykkt í borgarráði 30. júní 2011 og uppfærð lýsing var samþykkt í borgarráði 28. febrúar 2013. Verkefnislýsingin er efnislega óbreytt frá fyrri útgáfu og stendur að öllu leyti fyrir sínu varðandi aðferðir og áherslur. Ástæða þess að verklýsingin er kynnt á ný er gildistaka nýrrar skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 og ákvæði hennar um reglugerðarskil, en nýtt aðalskipulag fyrir Reykjavík mun verða sett fram í samræmi við ákvæði nýrrar skipulagsreglugerðar.





Aftast í lýsingunni er að finna uppfærða tímaáætlun um kynningarferli en áformað er auglýsa tillögu að nýju aðalskipulagi fyrir Reykjavík í vor. Nálgast má lýsinguna á vefsvæði umhverfis og skipulagssviðs, www.skipbygg.is.