Nýtnivikan - taktu þátt í samkeppni! Pappír er ekki rusl

Umhverfi

""

Taktu þátt í samkeppni Nýtnivikunnar! Allir eru hvattir til að virkja sköpunargáfuna í skemmtilegri samkeppni. Sendu inn mynd og texta af hlut úr pappír eða pappa sem er endurnýttur eða endurskapaður. Verðlaun verða í formi inneignar hjá Góða hirðinum og Rauða krossinum, sölubás í Kolaportinu og hagnýt verðlaun fyrir þann sem fær flest „like“ á facebook síðu Reykjavíkurborgar.

Dómnefnd mun velja þrjú pappírsverk sem fengið hafa framhaldslíf, út frá frumleika, sögu og endingu. Sendu okkur mynd af hlutnum, stutta lýsingu, sitthvað um hlutverk hans, uppruna og erindi í samkeppnina.

Hægt er að senda inn mynd á þrjá vegu:

  1. Þú getur tekið myndina á símann þinn með Instagram og þarft aðeins að merkja hana #reykjavikurborg #nytnivikan. Mundu að láta lýsinguna fylgja með sem myndatexta þ.e. „Type your caption here“. Athugið að myndirnar skila sér EKKI í keppnina ef hakað er við "Photos are private" í "Photo privacy" í stillingum Instagram. Einnig þarf að haka við einn af möguleikunum fimm (Facebook, Twitter, Foursquare, Tumblr eða Flickr) í "Sharing settings" áður en myndin er send.
  2. Þú getur sett myndina á fésbókarvegg Reykjavíkurborgar: https://www.facebook.com/Reykjavik. Athugaðu bara að láta lýsinguna fylgja með sem myndatexta og að myndin sé merkt #nytnivikan.
  3. Þú getur sent okkur myndina ásamt lýsingu í tölvupósti á netfangið nytnivikan@gmail.com.

Öllum myndum sem berast í samkeppnina dagana 16. - 24. nóvember verður safnað saman í eitt myndaalbúm á fésbók Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hafa allar myndir sem berast í samkeppnina í í sömu stærð og á sama formi.

Ps. Muna að láta nafn og netfang sendanda fylgja myndunum.