Nýr starfsmannastjóri hjá Reykjavíkurborg

Stjórnsýsla Mannlíf

""

Anna María Pétursdóttir hefur verið ráðin starfsmannastjóri Reykjavíkurborgar. Hún er með víðtæka menntun, hún hefur lokið kennaranámi og er með meistaragráður í vinnusálfræði og fjármálum. Hún hefur jafnframt aflað sér viðbótarmenntunar í náms- og starfsráðgjöf, og verkefnastjórnun.

Anna María hefur starfað sem framkvæmdastjóri starfsmannahalds hjá Vífilfelli frá árinu 2007 en áður var hún starfsmannastjóri Seðlabankans. Hún hefur víðtæka reynslu af stjórnun starfsmannamála og uppbyggingu á því sviði og hefur m.a. kennt vinnusálfræði á meistarastigi víð Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Anna María þykir fagleg og kraftmikil. Hún leggur áherslu á samstarf og tekst óhikað á við nýjungar.

 
Við fögnum því að fá Önnu Maríu til starfa hjá Reykjavíkurborg.