Guðrún Jóna Thorarensen hefur verið ráðin leikskólastjóri við leikskólann Sólborg. Þetta var ákveðið á fundi skóla- og frístundaráðs miðvikudaginn 6. nóvember.
Guðrún Jóna Thorarensen hefur verið ráðin leikskólastjóri við leikskólann Sólborg. Þetta var ákveðið á fundi skóla- og frístundaráðs miðvikudaginn 6. nóvember.
Guðrún Jóna lauk námi í leikskólakennarafræðum við Kennaraháskóla Íslands árið 2001 og meistaraprófi í stjórnun menntastofnana frá HÍ 2012. Hún hefur starfað sem aðstoðarleikskólastjóri og leikskólastjóri í sex ár, m.a. í leikskólunum Grandaborg og Jörfa. Sjö umsækjendur voru um stöðuna.
Sólborg er sérhæfður leikskóli og gegnir leiðandi hlutverki í starfi með heyrnarskertum börnum.
Um leið og Guðrúnu Jónu er óskað til hamingju með starfið er Jónínu Konráðsdóttur þakkað frábært starf í gegnum tíðina í þágu leikskólabarna hjá Reykjavíkurborg. Jónína lætur af störfum 31. desember n.k. sem leikskólastjóri Sólborgar, en hún hefur stýrt leikskólanum farsællega frá opnun hans. Hún hefur verið frumkvöðull varðandi innleiðingu á hugmynda- og aðferðafræðinni nám án aðgreiningar svo eftir hefur verið tekið innan lands jafnt sem utan landsteinanna.