Nýir heitir pottar við Vesturbæjarlaug

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Borgarráð heimilaði umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við gerð nýrra heitra potta við Vesturbæjarlaug á fundi sínum í gær. Áætlaður kostnaður er um 120 milljónir króna.

Í greinargerð vegna framkvæmdanna kemur fram að fyrirhugaðir pottar samanstanda af vaðpotti fyrir börn með leiktækjum, nuddpotti og hvíldarpotti. Á milli nudd og hvíldarpotta verður einnig komið fyrir herða- og iljanuddi. Komið verður fyrir jarðhýsi við pottana sem hýsir hreinsitæki og fleira.

Núverandi sundlaugarsvæði verður rýmkað til að sólar njóti sem best við pottana. Nýjar girðingar verða reistar í kringum pottana. Vatnsyfirborði potta er lyft um 45 sm frá laugarbakka til að auðvelda aðgengi fatlaðra.

Einnig verður unnið að viðhaldi við búningsklefa kvenna en þar verða steypiböð og þurrksvæði endurnýjuð.  Áætlaður kostnaður við það er 35 milljónir króna.

Áætlað er að framkvæmdir hefjist í lok maí en þeim lýkur í lok október.