Ný tré sem hæfa Kvosinni

Umhverfi Skipulagsmál

""

Í Kvosinni er verið að gróðursetja ný tré sem hæfa staðsetningunni betur en aspirnar sem fyrir voru.  Meðfram Templarasundi koma 4 tré, við Kirkjutorg verða 10 tré endurnýjuð og í Lækjargötu frá Iðnó suðurs eftir Fríkirkjuvegi koma 6 tré.  Hugað verður betur að rými fyrir rótarkerfi trjánna með rótarvænu burðarlagi undir nærliggjandi hellur.  Auk nýrra trjáa kemur undirgróður, runnar og fjölæringar.

Aspirnar sem fyrir voru höfðu vaxið út fyrir rými sitt og voru víða skemmdar á stofnum og rótarhálsi meðal annars eftir trjáhlífar og hlemma.  Rætur þeirra höfðu lyft hellum og talin var hætta á að þau gætu fallið í vondu veðri.  Við Skólabrú voru einnig fjarlægð tré sem skemmd voru af akstri bíla en engin tré koma í stað þeirra vegna lítils rýmis fyrir rótakerfi.

Læra af reynslunni

Gráreynir, virginíuheggur og skrautreynir koma í stað aspanna nú. Að mestu eru það sömu tegundir og notaðar voru þegar breytingar voru gerðar  við Vonarstræti og Tjarnargötu árið 2011.  Þórólfur Jónsson garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar segir að það hafi heppnast vel.   „Við höfum verið að læra af reynslunni og erum í raun enn að þreifa okkur áfram með það hvaða tegundir hæfa best,“ segir hann.   „Við þekktum ekki götutré þegar byrjað var á þessari gróðursetningu upp úr 1980. Þá var unnið eftir þeirri þekkingu sem menn höfðu þá og við höfðum ekki neina aðra tegund en ösp til að velja úr. Góð götutré þurfa að vera nægilega bein og há, þannig að krónan sitji hátt.“  Þórólfur segir að til standi að prófa fleiri tegundir. Einnig á að  kanna hvort fýsilegt sé að flytja inn tré erlendis frá sem búið er að rækta upp sem götutré.  Eftir  1-2 ára aðlögun hér væru þau tilbúin til útplöntunar.  Trén og rótarkerfið sem fjarlægt var verður skoðað sérstaklega af fagaðilum m.a. hvernig trén hafa þroskast í þröngu rótarrými og afleiðingar af skemmdum á rótarháls og stofn.

Aspartrén í Kvosinni eru ekki þau einu sem þurfa að víkja því fyrir liggur að það sama mun gerast við Laugaveg fyrr eða síðar. Stærstu aspartrén þar eru yfir 10 metra há og mörg þeirra illa farin og víða er vandamál með hellulögnina. Reykjavíkurborg hefur alls ekki afskrifað öspina, en henni er valinn staður við hæfi og bendir Þórólfur á að öspin þrífist vel í Borgartúninu og eigi vel við þar sem hús séu stærri og meira pláss fyrir stórar trjákrónur.

 

Nánari upplýsingar í Framkvæmdasjá: Götutré í Kvosinni - uppbygging og endurnýjun