Með nýrri fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2014 skapast í fyrsta sinn frá hruni svigrúm til að endurnýja tækjakost í skóla- og frístundastarfi.
Strax eftir áramót verður farið í að endurnýja tæki og búnað sem víða er orðinn óhóflega gamall. Stefnt er að því að endurnýjun og uppfærslum ljúki á árinu 2015.
Ráðgert er að verja á þessu ári 85 milljónum króna til búnaðarkaupa í leikskólum, grunnskólum og frístundamiðstöðvum og 170 milljónum á næsta ári. Jafnframt verður ráðist í að bæta gagnatengingar hjá mörgum stofnunum skóla- og frístundasviðs sem getur haft jákvæð áhrif á skólastarfið með nýjum kennsluaðferðum, s.s. í netnámi.