ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Ný hreindýr í húsdýragarðinum
Þrjú hreindýr hafa bæst við íbúafjöldann í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Hreindýrin, öll vetrungar, tveir tarfar og ein simla, voru flutt í hestakerru í Laugardalinn eftir að þeir Skarphéðinn Þórisson sérfræðingur á Náttúrustofu Austurlands, Sveinn Ingimarsson bóndi og skytta og Ívar Karl Hafliðason handsömuðu þau á Fljótsdalsheiði.