Ný búningsaðstaða í Laugardalslaug

Á sunnudag verður ný búningsaðstaða í Laugardalslaug tekin í notkun.  Um er að ræða endurnýjun frá grunni, ný flísalögn, hitalagnir, nýtt loftræsingarkerfi, nýtt sturtukerfi og nýir skápar með rafrænum læsingum.



Þegar opnar í bítið á sunnudag verður búið að endurnýja helming búningsaðstöðunnar inni og fá konurnar að njóta hennar fyrst, en karlarnir fá útiklefana til afnota tímabundið þar til seinni áfanga endurnýjunar lýkur um miðjan júní.   Þá verður aftur boðið upp á kynskipta inniklefa og útiklefa eins og áður var.  Það mun þó ekki væsa um karlana í útiklefunum því þar er hiti í gólfum, skápum hefur verið fjölgað og komið hefur verið fyrir sérstökum sturtugámi.



Vegna framkvæmdanna við nýju búningsklefana er Laugardalslaug lokuð í dag og á morgun, en opnar svo hrein og fersk á sunnudag klukkan 8.  Í dag var verið að hreinsa laugina með háþrýstisprautum. Þá verður einnig fyrir sunnudag búið að flytja inngang aftur í nýju afgreiðsluna en vegna breytinganna þurfti tímabundið að nota eldri inngang.



Gríðarlega miklar breytingar hafa verið gerðar síðustu tvö ár og var tekin sú ákvörðun að halda lokunum í lágmarki. „Það hefði ekki verið mögulegt nema fyrir góðan skilning okkar gesta sem sýnt hafa biðlund og þolinmæði“, segir Logi Sigurfinnsson forstöðumaður Laugardalslaugar.  Meðal  endurbóta og breytinga sem lokið er má nefna nýjan hreystivöll, nýjan sjópott, endurnýjun brúar, hitalagnir á sundlaugarbakka með nýju mjúku yfirborði, endurbætur á útiklefum, viðgerð á þaki stúkunnar og nú á sunnudag verður lokið fyrri áfanga endurbóta á búningsherbergjum. 



Nánari upplýsingar er að finna í Framkvæmdasjá >>>  Endurbætur á Laugardalslaug.