Annað tölublað ársins 2013 af Borgarsýn er komið út en blaðið birtist fyrst 2011. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar gefur kynningarritið út og er tilgangurinn með útgáfunni fyrst og fremst að upplýsa borgarbúa um þau verkefni sem eru efst á baugi skipulagsmála hverju sinni.
Skoða Borgarsýn 6. tbl 2013 (PDF)
Reykjavík einkennist í sumar af vinasamlegu mannlífi, kraftmikilli sprettu og margskonar framkvæmdum, og þá iðar miðborgin af lífi með hjálp erlendra ferðamanna. Reykjavíkurborg leggur sitt að að mörkum meðal annars með því að koma borginni í sumarbúning, nýstárlegum (bið)torgum og matarmarkaði á Lækjartorgi. Framkvæmdir eru í gangi eða fyrirhugaðar út um alla borg og má þar nefna endurgerð gatna á Frakkastíg, Hverfisgötu og í Borgartúni.
Í þessu tölublaði af Borgarsýn er af mörgu að taka og er m.a. umfjöllun um nýtt aðalskipulag en borg fyrir fólk er leiðarvísirinn í nýju aðalskipulagi Reykjavíkur, sem búist er við að verði samþykkt á þessu ári. Við erum stolt af nýju aðalskipulagi sem felur í sér ýmsar nýjungar m.a. umhverfis- og auðlindastefnu sem miðar að því að tryggja lífsgæði næstu kynslóða. Aðalskipulag er mikilvægt stjórntæki því þar er sett fram stefnumótun sem er bindandi fyrir allar aðrar skipulagsákvarðanir eins og hverfisskipulag og deiliskipulag.
Hverfisskipulag er nýbreytni sem sprettur af aðalskipulaginu og má lesa um í þessu tölublaði Borgarsýnar. En af nógu er að taka í blaðinu og borginni allri í sumar, má þar nefna Grænu skrefin í starfssemi Reykjavíkurborgar sem er verkefni sem fjölmargir vinnustaðir borgarinnar stunda af kappi.
Skipulagsyfirvöld vonast til þess að Borgarsýn upplýsi borgarbúa um áherslur varðandi þróun og ásýnd borgarinnar hverju sinni enda viðfangsefni sem kemur öllum við. Kynningarritið Borgarsýn er gefið út í 500 eintökum og er einnig aðgengilegt á vefnum. Ritstjórar Borgarsýnar eru Björn Ingi Edvardsson, Valný Aðalsteinsdóttir og Gunnar Hersveinn.