Notendastýrð persónuleg aðstoð
Borgarráð hefur samþykkt reglur, fjárveitingu og tillögur að framkvæmd fyrir svokallaða NPA þjónustu fyrir fatlað fólk. (NPA stendur fyrir Notendastýrð persónuleg aðstoð). Þjónustan byggir á hugmyndafræði um sjálfstætt líf fatlaðs fólks. Þetta er í samræmi við framtíðarsýn Reykjavíkurborgar um þjónustu við fatlað fólk sem m.a. byggir á samráði við notendur og þróun notendastýrðar aðstoðar. Markmiðið með NPA er að koma til móts við þarfir fatlaðs fólks svo að það megi lifa sjálfstæðu og virku lífi og hafi val um hvernig aðstoðinni við það er háttað. Fyrst um sinn er um tilrauna- og þróunarverkefni að ræða eða út árið 2014.
NPA felur í sér að fatlað fólk ræður sér aðstoðarfólk sem það kýs sjálft. Aðstoðarfólkið vinnur samkvæmt starfslýsingu sem notandi semur og samræmist lífsstíl hans og kröfum. NPA felur í sér mánaðarlegar greiðslur til notanda eða umsýsluaðila sem hann hefur valið og er þeim ætlað að mæta launum aðstoðarfólks, kostnaði og umsýslukostnaði.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar auglýsti eftir þátttakendum í þróunar- og tilraunaverkefni um NPA á þjónustusvæði Reykjavíkurborgar og Seltjarnarnesbæjar í ágúst 2012. Í tilraunaverkefninu geta þeir tekið þátt sem eiga lögheimili í Reykjavík eða á Seltjarnarnesi og falla undir lög um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992 með síðari breytingum, eru á aldrinum 18-67 ára og þurfa daglega aðstoð sem nemur a.m.k. 20 klukkustundum eða meira á viku. Foreldrar fatlaðra barna sem þurfa daglega aðstoð geta jafnframt tekið þátt vegna barna sinna.
Samvinna er höfð við umsækjendur við mat á stuðningsþörf, gerð samkomulags og samnings um NPA. Í ljósi þess að um tilrauna-og þróunarverkefni er að ræða sem háð er tilteknu fjármagni verða þeir í forgangi fyrir þjónustu sem hafa einstaklingsbundnar þarfir sem ekki hefur verið hægt að komast til móts við á annan hátt á þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar og fyrir liggur faglegt mat um að notendastýrð persónuleg aðstoð sé hentugt form til að mæta þjónustuþörfum þeirra. Stefnt er að því að tilraunaverkefnið nái til fjölbreytts hóps notenda sem býr við mismunandi aðstæður.