Í félagsmiðstöðinni Holtinu í Norðlingaholti hefur undanfarna mánuði verið lögð mikil áhersla á útivist. Markmiðið er að auka útiveru ungmenna og kynna fyrir þeim fjölbreytta útivistarflóru innan borgarmarka. Holtið fékk í apríl í lið með sér tvo nema úr tómstunda- og félagsmálafræðum við Háskóla Íslands og störfuðu þeir með starfsfólki félagsmiðstöðvarinnar í fjórar vikur sem lið í vettvangsnámi þeirra. Þeir skipulögðu krefjandi útivistardagskrá sem miðuðu að því að þjálfa ýmis konar færni hjá unglingunum og efla félagsfærni þeirra.
Nemarnir sem að voru í Holtinu hönnuðu tvo Amazing Race-ratleiki þar sem að markmiðið var að fá ungmennin til að vinna saman sem liðsheild og í leiðinni að kynnast nærumhverfi sínu. Nemendur í 5. - 7.bekk þurftu í leiknum að leysa ýmsar þrautir víðs vegar um Norðlingaholtið en þau í 8. - 10.bekk fóru vítt og breitt um allan Árbæinn. Vegleg verðlaun voru fyrir sigurliðin og þökkum við þeim fyrirtækjum sem að styrktu okkur. Þau voru Subway, Keiluhöllin, Skautahöllin og Skalli.
Einnig fórum við í útivistarferð í Gufunesbæ þar sem grillaðar voru pylsur, farið í folf og veggjaklifur í gamla súrheysturninum. Loks fórum við aftur í Hungurleika í Björnslundi þar sem mikil áhersla var lögð á útsjónarsemi, seiglu, þolgæði, snerpu og þolinmæði. Ungmennin voru mjög ánægð með dagskrána því hvað gleður meira en frískt loft og rjóðar kinnar?