Njarðarskjöldurinn og Freyjusóminn eru viðurkenningar og hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar sem veitt eru árlega til verslana eða verslunareigenda fyrir góða þjónustu og ferskan andblæ í ferðamannaþjónustu.
Viðurkenningarnar voru veittar við hátíðlega athöfn í Hörpu nú síðdegis. Jón Gnarr, borgarstjóri, flutti stutt ávarp og að því loknu afhenti hann verðlaunin.
Njarðarskjöldurinn - Ferðamannaverslun ársins 2012
Njarðarskjöldurinn er hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar, Miðborgarinnar okkar, Félags atvinnurekenda, Kaupmannasamtakanna, SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu, Global Blue á Íslandi og Tax Free Worldwide – Ísland.
Hann er nú veittur í sautjánda sinn en markmið verðlaunanna er að hvetja til bættrar og aukinnar verslunarþjónustu við ferðamenn í Reykjavík.
Njörður, sem skjöldurinn er kenndur við, var upphaflega frjósemisguð en síðar guð sæfarenda og sagður fésæll mjög. Sæfarendur þess tíma stunduðu gjarnan kaupskap og því við hæfi að kenna árleg hvatningarverðlaun til ferðamannaverslunar við guð siglinga og viðskipta. Við tilnefningu ferðamannaverslunar ársins er leitast við að verðlauna þá verslun sem hefur náð hvað bestum söluárangri til erlendra ferðamanna milli ára.
Í ár bregður svo við í fyrsta sinn að það er ekki verslun sem hlýtur verðlaunin heldur verslunarmaður, einstaklingur sem hefur sett mark sitt á verslunarrekstur í miðborginni með mjög afgerandi hætti. Sigurður Guðmundsson rekur tvær Viking Store verslanir í miðborginni. Verslanirnar eru leiðandi í miðborginni og hafa veitt ferðamönnum úrvals þjónustu á liðnum árum. Að auki rekur Sigurður ferðamannaverslunina Made in Iceland á Laugaveginum, þar sem áhersla er lögð á íslenskar úrvalsvörur. Á nýliðnu ári opnaði Sigurður listagalleríið Listfléttuna á Laugavegi en meirihluti viðskiptavina þar kaupir myndverk af íslenskum myndlistarmönnum. Að lokum rekur Sigurður hina 97 ára gömlu verslun Vísir, einnig að Laugavegi 1. Fyrri eigandi hennar var við að leggja reksturinn af eftir hartnær aldarlangan rekstur en þá tók Sigurður við versluninni. Hann segir reksturinn ekki standa undir sér en hins vegar sé verslunin svo söguleg og mikilvæg fyrir svæðið, ekki síst fyrir ferðamenn, að hún megi alls ekki hverfa. Sigurður kallar sig ekki framkvæmdastjóra eða þvíumlíkt. Hann kveðst fyrst og fremst vera verslunarmaður. Hann kveðst bera mikið traust til starfsfólks síns - saman vinni þau að því að gera reksturinn og þjónustuna betri ár frá ári.
Freyjusómi – ferskur andblær í ferðamannaverslun 2012
Freyjusómi er hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar, Miðborgarinnar okkar, Félags atvinnurekenda, Kaupmannasamtakanna, Samtaka verslunar og þjónustu, Global Blue á Íslandi og Tax Free Worldwide – Ísland.
Freyjusómi er viðurkenning sem nú er afhent í annað sinn samhliða afhendingu Njarðarskjaldarins. Viðurkenningin er veitt til þeirrar verslunar sem þykir koma með hvað ferskastan andblæ í verslunarrekstur á ferðamannamarkaði í borginni.
Það er verslunin Eggert feldskeri, Laugavegi 32 sem hlýtur viðurkenninguna fyrir framsækin verslunarstörf árið 2012.
Nafn viðurkenningarinnar er sótt í norræna goðafræði eins og nafn Njarðarskjaldarins en Freyja var gyðja frjósemi og þykir því vel við hæfi að tengja Freyju við viðurkenninguna þar sem frjó hugsun og fersk nálgun er höfð að leiðarljósi í verslunarþjónustu gagnvart erlendum ferðamönnum.
Eggert Jóhannsson feldskeri er löngu orðinn goðsögn í verslunarrekstri í miðborginni, fagmaður fram í fingurgóma og frumkvöðull á sínu sviði. Hann segist vera umhverfisverndarsinni og að umhverfisvernd byrji alltaf heima hjá hverjum og einum. Hans umhverfi er Skólavörðustígurinn, þar býr hann og starfar, og þess vegna vilji hann veg götunnar sem mestan. Hann hefur verið í broddi fylkingar fyrir uppbyggingaröflum í götunni og starfar með þeim sem vilja gera hana skemmtilegri, aðgengilegri og fallegri. Það eru margir frábærir verslunarmenn á Skólavörðustíg sem eru að gera góða hluti og hafa unnið saman að því að gera Skólavörðustíginn að afburða verslunargötu. Samstaða rekstraraðila á Skólavörðustígnum er góð fyrirmynd fyrir rekstraraðila annarsstaðar í borginni og reyndar á landinu öllu því saman hefur þeim tekist að búa til hátíðir, skreyta götuna og nærumhverfi sitt með eftirtektarverðum hætti. Eggert á drjúgan þátt í að koma á laggirnar götuhátíðum, t.d. Kjötsúpudeginum og Blómadeginum. Einnig hefur hann verið virkur þátttakandi í hátíðum sem aðrir hafa komið á fót eins og Beikon hátíðinni. „Það þýðir ekkert að bíða eftir því að aðrir komi og geri hlutina fyrir mann, stundum verður maður bara að gera þá sjálfur“ segir Eggert og talar greinilegar af reynslu.