Nemendur í Grafarvogi styrkja Barnaspítala Hringsins

Nemendur Hamraskóla, Húsaskóla og Foldaskóla söfnuðu í haust ónýtum rafeindatækjum sem þau seldu til endurvinnslu. Ágóðann gáfu þau Barnaspítala hringsins, alls 50.012 krónur. Fulltrúar skólanna heimsóttu leikstofu spítalans miðvikudaginn 30. janúar og fengu frábærar móttökur. Styrkurinn var afhentur Jóhönnu Guðbjörnsdóttur, aðstoðarmanni framkvæmdarstjóra á kvenna- og barnasviði, sem þakkaði nemendum frábært framtak sem sýndi gott hjartalag og dugnað. Styrkurinn mun koma að góðum notum.

Söfnunin var liður í átaksverkefni skólanna þriggja sem miðar að því að leiðbeina og fræða nemendur og foreldar um ábyrga og örugga tölvunotkun. Verkefnið hófst í upphafi skólaárs og voru viðfangsefni nemenda fjölþætt.



Yngstu nemendurnir lásu forvarnarbækur SAFT ásamt foreldrum og kennurum og sömdu spunaleikþátt um rafrænt einelti sem bauð upp á virka þátttöku allra í leiksýningum. Auk þess túlkuðu nemendur umfjöllunarefnið í myndmenntavali  með glæsilegum myndverkum sem prýða veggi skólanna. Nemendur í 1. - 10. bekk Foldaskóla gerðu rannsókn þar sem tölvueign og tölvunotkun heimila þeirra var kortlögð og skrifuðu grein í Grafarvogsblaðið. Megináhersla var þó lögð á fræðslu og leiðbeiningu til foreldra og nemenda í 5. - 10. bekk. 



Um fræðsluna sáu Þórir Ingvarsson rannsóknarlögreglumaður sem hefur mikla reynslu af að vinna úr kærumálum tengdum óábyrgri tölvunotkun ungmenna og Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur sem vinnur með ungmenni sem haldin eru tölvufíkn.

Tilurð átaksverkefnisins má rekja til þess að skólasamfélagið fer ekki varhluta af óhóflegri og eftirlitslausri tölvunotkun barna og unglinga og hvaða áhrif slíkt getur haft á líðan þeirra. Hún endurspeglast m.a. í því að nemendur mæta oft á tíðum vansvefta, illa fyrir kallaðir og úrvinda í skólann. Þeir eiga í miklum erfiðleikum með að taka eftir í kennslustund, fara eftir fyrirmælum og tileinka sér námsefnið. Þá lenda þeir frekar í útistöðum við kennara og samnemendur og einangrast félagslega, auk þess sem aukin hætta er á einelti. Forvarnarfræðsla til nemenda og foreldra er því mikilvæg - með henni má styrkja samstarf heimila og skóla sem aftur bætir líðan barna og unglinga innan veggja skólans sem utan. 

Samstarfsverkefnið var unnið í samvinnu við SAFT, Græna framtíð, Rannsóknarlögreglu ríkisins, sálfræðing, foreldrafélög, kennara og starfsfólk skólanna.  Forvarnarsjóður Reykjavíkur styrkti verkefnið, en verkefnastjóri var Kristín Helgadóttir náms- og starfsráðgjafi Foldaskóla.