Nauthólsvík vöktuð allan ársins hring

Umhverfi Íþróttir og útivist

""

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vaktar vatnsgæði strandsjávar í Reykjavík og fer sýnataka fram ár hvert frá apríl til október. Sýnatökustaðir eru ellefu talsins frá Kjalarnesi yfir í Nauthólsvík og eru valdir með tilliti til útvistar. Nauthólsvík er vöktuð allan ársins hring vegna sjóbaða.

Skráð er hitastig, veðurfarsþættir, sjávarstaða og tekin sýni til saurgerlamælinga. Niðurstöður úr sýnatöku fyrir saurgerla eru bornar saman við umhverfismörk í reglugerð um varnir gegn mengun vatns nr. 796/1999.

Heilbrigðiseftirlitið tekur í ár að auki sýni, í samvinnu við Hafrannsóknarstofnun, til mælinga á næringarefnum í strandsjó.

Niðurstöður í apríl og maí eru góðar og hafa verið innan marka reglugerðar að undanskilinni mælingu á Ægisíðu í apríl en á þeim fór fram endunýjun á dælum í fráveitudælustöðinni við Hafnarbraut í Kópavogi .

Niðurstöður vöktunar eru birtar á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur undir vöktun strandsjávar.