Námskeið um innleiðingu nýrrar aðalnámskrár

Skóli og frístund

""

Rúmlega 80 skólastjórnendur í Reykjavík sóttu í gær námskeið um grunnþætti menntunar. Það var haldið í Hlöðunni í Gufunesbæ og er liður í námskeiðslotu um innleiðingu nýrrar aðalnámskrár.

Boðið var upp á stuttar kynningar um sex grunnþætti menntunar og síðan ræddu skólastjórnendur og kennarar um hvernig staðan væri í grunnskólum borgarinnar varðandi innleiðingu grunnþáttanna og hvað þyrfti að gera til að þeir næðu að lita allt skólastarfið.

Síðar á þessari önn verður boðið upp á fræðslu- og vinnufund um þær breytingar á námsmati sem ný aðalnámskrá kallar á.

Á haustönn 2013 verður einnig boðið upp á tvo námskeiðsdaga fyrir skólastjórnendur um innleiðingu nýrrar aðalnámskrár.

Námskeiðið er unnið í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.