Námskeið fyrir verðandi foreldra og foreldra ungbarna 27. og 28. apríl
Námskeið fyrir verðandi foreldra og foreldra ungbarna 27. og 28. apríl
Gottman námskeiðinu „Að verða foreldri“ er ætlað að búa verðandi foreldra og foreldra ungbarna undir þær breytingar sem verða í parsambandinu með tilkomu barns.
Lögð er áhersla á að:
- efla vinatengsl og nánd í sambandinu
- stjórna ágreiningi
- vera samstillt í uppeldishlutverkinu
- þekkja grundvallaratriði í þroska barna
- vita hvert hægt er að leita eftir stuðningi og ráðgjöf þegar þörf er á
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru viðurkenndir Gottman leiðbeinendur (e. Certified Gottman Educators). Hera Ó. Einarsdóttir, félagsráðgjafi, Ólafur Grétar Gunnarsson, fjölskylduráðgjafi og Valgerður Snæland Jónsdóttir fv. sérkennslufulltrúi og skólastjóri.
Námskeiðið er samstarfsverkefni Rannsóknastofnunar í barna- og fjölskylduvernd (RBF), Gottman á Íslandi, sveitarfélaga og Fjölskyldunefndar SHÍ.
Námskeiðið hefur notið styrkja frá ýmsum aðilum.
Kennslan fer fram með fyrirlestrum og með par- og einstaklingsverkefnum, frá kl. 11.00 - 17.30 báða dagana með hádegis- og kaffihléum.
Allir verðandi foreldrar og foreldrar ungbarna eru velkomnir.