Nær 30 milljónir króna í styrki til skóla- og frístundastarfs í borginni
Skóli og frístund Fjármál
Nær 30 milljónir króna í styrki til skóla- og frístundastarfs
Skóla- og frístundaráð afgreiddi á fundi sínum 6. febr. almenna styrki og þróunarstyrki til skóla- og frístundastarfs. Yfir sjötíu umsóknir bárust og fengu fjörutíu verkefni styrki fyrir alls um 30 milljónir króna.
Við afgreiðslu þróunarstyrkja var haft að leiðarljósi að styrkja verkefni sem leggja áherslu á læsi, lýðræði, mannréttindi og upplýsinga- og tæknimennt í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi.
Hæsti þróunarstyrkurinn, 2,5 milljón króna, fór til verkefnisins Okkar mál sem miðar að auknu samstarfi um menningu, málþroska og læsi í Fellahverfi. Þetta er samstarfsverkefni leikskóla, grunnskóla og frístundar í Fellahverfi, auk Háskóla Íslands og þjónustumiðstöðvar Breiðholts.
Hólabrekkuskóli fékk 1,2 milljónir króna til að búa til gagnvirk málfræðiverkefni fyrir unglinga í dönsku og íslensku.
Þá kom 1.5 milljón króna í hlut leikskólans Suðurborgar til að efla sérhæfingu skólans í atferlisþjálfun fyrir börn á einhverfurófi
Þá var m.a. veittur styrkur til að halda myndlistarnámskeið fyrir börn í Breiðholti.
Bergljót Guðmundsdóttir í Þjónustumiðstöð Breiðholts ásamt Þórhöllu Guðmundsdóttur í Þjónustumiðstöð Miðborgar- og Hlíða fengu 800 þúsund til að búa til og hanna námskeið um myndbandssýnikennslu fyrir starfsfólk í leikskólum.