Breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024.
Mýrargata-Geirsgata. Tillaga um að falla frá stokkalausn
og færslu Mýrargötu. Gatnamót Geirsgötu og Kalkofnsvegar.
Borgarráð Reykjavíkur samþykkt þann 28. nóvember 2013, tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024, varðandi afmarkaðar breytingar á gatnaskipulagi í miðborginni. Annarsvegar að falla frá færslu Mýrargötu og stokklausn á Slippasvæðinu og hinsvegar lítilsháttar breytingu á framsetningu gatnamóta Geirsgötu og Kalkofnsvegar, þannig að þau verði sýnd hornrétt á þéttbýlisuppdrætti. Þessar breytingartillögur eru samhljóða og í fullu samræmi við þær breytingar sem tillaga að nýju aðalskipulagi 2010-2030 fela í sér.
Tillagan var kynnt í samræmi við 30.-31. gr. skipulagslaga, sbr. gr. 36 um breytingar á aðalskipulagi. Tillagan var auglýst samhliða deiliskipulagstillögum fyrir aðliggjandi reiti, Vesturbugt og Nýlendureit, sem taka mið af umræddum breytingum á gatnaskipulagi Mýrargötu.
Tillögurnar voru kynntar á tímabilinu 14. ágúst til 25. september 2013. Frestur til að gera athugasemdir var framlengdur til 3. október. Alls bárust 2 athugasemdir við aðalskipulagstillöguna á auglýsingatímanum, auk umsagna umsagnaraðila. Athugasemdir og umsagnir gáfu ekki tilefni til efnislegra breytinga á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar.